Skráning á kerfiskennitöluskrá er eingöngu fyrir einstaklinga sem dvelja skemur en 3 mánuði á Íslandi eða munu ekki dvelja hér á landi. Skráningin veitir engin réttindi. Eingöngu opinberir aðilar geta sótt um kerfiskennitölur fyrir erlenda ríkisborgara.
Umsókn um kennitölu fyrir einstaklinga vegna búsetu skemur en 3 mánuði á Íslandi:
Skatturinn óskar eftir kerfiskennitölu fyrir þá sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- EES/EFTA ríkisborgara sem dvelja skemur en þrjá mánuði og eru í launuðu starfi
- Maki Íslendings eða EES/EFTA ríkisborgara sem er í launuðu starfi en bíður niðurstöðu dvalarleyfisumsóknar.
- Einstaklingar með framtalsskyldar fjármagnstekjur á Íslandi.
Sótt er um kerfiskennitölur á eyðublaði RSK 3.30, hér má finna eyðublaðið: rsk_0330.is.pdf, útfyllt eyðublað ásamt afriti af vegabréfi eða ferðaskilríki má senda á netfangið kerfiskennitolur@skatturinn.is.
Ef erlendur ríkisborgari hyggst dvelja lengur en 3 mánuði á Íslandi og njóta réttinda hér á landi þá gildir eftirfarandi: EES/EFTA ríkisborgarar sem ætla að dvelja umfram þrjá mánuði eiga að snúa sér beint til Þjóðskrár Íslands en þeir sem eru utan EES/EFTA snúa sér til Útlendingastofnunar.
Umsókn um kennitölu erlendra ríkisborgara vegna stjórnarsetu:
Umsókn um kerfiskennitölu til erlendra ríkisborgara vegna stjórnarsetu nær einungis til þeirra sem eru stofnendur félaga, sitja í stjórn, eru framkvæmdastjórar eða prókúruhafar.
Sækja þarf um kennitölu fyrir þessa einstaklinga með því að fylla út eyðublað RSK 17.62.
Beiðnin þarf að berast með tilkynningu um stofnun félags eða tilkynningu um breytingu þar sem verið er að skrá viðkomandi aðila inn. Hægt er að senda eyðublaðið ásamt umbeðnum gögnum á netfangið fyrirtaekjaskra@skatturinn.is.
Umsókn um kennitölu vegna bankaviðskipta:
Til þess að sækja um kerfiskennitölu vegna bankaviðskipta þarf að hafa samband við Þjóðskrá.
Umsókn um kennitölu vegna fasteignakaupa:
Umsóknir um kerfiskennitölur vegna fasteignakaupa þurfa að berast frá sýslumanni. Vinsamlegast hafið samband við sýslumannsembætti á því landsvæði sem fasteignin er.